Skjaldarmerki íslenska lýðveldisins

Share

Efnahagur ESB og Eurochambers

The Association of European Commerce and Industry. Viðskiptaráð Íslands er aðili að þessum samtökum.


 Samkæmt rannsóknum Eurochambers er efnahagur Evrópusambandsins alltaf að dragast meira og meira aftur úr efnahag Bandaríkjanna
 
 Núna er ESB 22 árum á eftir BNA í þjóðartekjum á hvern mann

 og heilum 30 árum á eftir BNA í rannsóknum og þróun

 Það sem enn verra er þá fer þetta bil breikkandi en ekki minnkandi

780days since
dagar síðan íbúar Evrópusambandsins áttu að vera orðnir ríkastir í heiminum samkvæmt Lissabon 2000 markmiðum Evrópusambandsins

Þróun fólksfækkunar í Þýskalandi: "eimreið ESB"

Þróun fólksfækkunar í Þýskalandi

5. desember 2011: velferðarráðherra Ítalíu, Elsa Fornero, brestur í grát þegar hún að tilskipan seðlabanka Evrópusambandsins og valdráði ESB í Brussel, framleggur þá niðurskurðaráætlun á meðal annars ellilífeyriskerfi Ítala, sem krafist er sem framlag af hálfu Ítalíu til bjargar evru-myntinni. Krafist er þess að ítalska þjóðin fórni hagsmunum sínum fyrir mynt sem hún að miklu leyti hatar, en sem hún kemst ekki lengur út úr. Tilskipanabréf seðlabankastjóra Evrópusambandsins var sent til forsætisráðherra Ítalíu í sumar. I millitíðinni hefur ítalski forsætisráðherrann verið fjarlægður frá völdum og tæknilegur ókjörinn embættismaður settur í hans stað.

Christopher Smallwood - margmiðlunarefni

Fyrirlestur - evra eða króna - margmiðlunarefni
Sænski hagfræðingnum Stefan De Vylder flytur fyrirlestur um myntbandalag Evrópusambandsins í boði Ísaflodar: 

Ágrip sögu Íslands: Lestu mig
Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru? Lestu mig
Kvikmynd: Nýfundnaland og Ísland - hver er munurinn?

  •  RSS áskrift (XML)  RSS áskrift (feed)
  • Pistill: Goðsagnir um EES-samninginn og "80 prósent" uppspuninn
    Við þurfum að ryðja úr vegi nokkrum goðsögnum um EES-samninginn þannig að vitrænar umræður um þetta mál geti farið fram. Lausleg þýðing á grein Heming Olaussen, formanns Nej til EU, úr norsku. Lesa hér
    Posted Feb 1, 2011 6:04 PM by Gunnar Rögnvaldsson
  • Samantekt vika 19 og 20 2010
    Horft yfir sundin og kominn heim
    Það er afskaplega gott að vera kominn heim til Íslands eftir 25 ára fjarveru

    Verðhrun markaða, óöryggi og svartýni
    Útbreidd svartýni og niður á við þrýstingur virðist vera að koma trú, kjark og áhættusókn fjárfesta á kné víða um heim

    Þýsk örvænting
    Þingið vill fá að sjá "blóð fljóta", sama hverra blóðið er

    Ríkisskuldaeldfjall Grikklands
    Smávægilegt hagvaxtaráfall í Grikklandi á næstu árum mun ná að skrúfa skuldabyrði gríska ríkisins upp í 170% af landsframleiðslu

    Hvað gerðist í Berlín, Brussel, Bundesbank og víðar evru-björgunarhelgina 7. til 9. maí ?
    There is a moment of shocked silence, because everyone participating in the conversation knows what this means

    Laun þurfa að falla um 20-30 prósent
    Launakostnaður í jaðarlöndum evrusvæðis þarf að falla um 20-30 prósent svo hagkerfi þessara landa geti orðið samkeppnishæf við Þýskaland

    Lygarar evru-myntbandalagsins
    Þýska viðskiptablaðið Handelsblatt var með harðorða grein í blaðinu í gær undir yfirskriftinni "evrulygarar - hvernig þeir sviku loforð sín"

    ECB-seðlabanki Evrópusambandsins féll á fyrsta prófinu
    ECB-seðlabankinn er fallinn á fyrsta prófinu, segir Wyplosz

    Keisarinn er klæðalaus
    6 mínútna langt viðtal við John Taylor

    Stutt en athyglisvert viðtal
    Var þetta þá eftir allt saman ekki Alan Greenspan að kenna?

    Mun Grikkland yfirgefa ESB?
    Í gær viðruðu bæði Nouriel Roubini og Michael Woolfolk þann líklega möguleika að gríska vandamálið yrði svo erfitt, þrátt fyrir alla björgunarpakkana, að Grikkland myndi yfirgefa myntbandalagið og ESB

    Engin samúð frá Sviss
    Zürcher Zeitung segir að evruríkin séu nú að greiða hið hæsta verð fyrir óraunhæft tálsýnar-myntbandalag

    Þjóðverjar óttast um myntina
    Samkvæmt könnun vilja 59 prósent Þjóðverja að Þýskaland íhugi að taka aftur upp þýska markið

    Myntbandalagið er hrunið
    Fjármálaráðherra Danmerkur, Claus Hjort Frederiksen, segir með óbeinum orðum að myntbandalag Evrópusambandsins sé hrunið

    Var það sjálfur seðlabanki ESB sem verið var að bjarga?
    Dr. Marc Faber heldur því blákalt fram að björgunaraðgerðin í gær hafi í raun snúist um að bjarga sjálfum seðlabanka Evrópusambandsins

    Keisari án klæða
    John Taylor hjá FX Concepts segir að evran sé í útrýmingarhættu

    Þýski seðlabankinn var andvígur. Axel Weber: nei!
    Axel Weber greiddi atkvæði gegn björgunaraðgerð ECB-bankans og sagði hana vera "áhættusama"

    Hvað ef? Hvað ef ECB er raunverulegur Frankenstein?
    Hver mun greiða fyrr gjaldþrot seðlabanka Evrópusambandsins ef illa fer?

    "Við ætlum að verja evruna sama hvað það kostar" (skattgreiðendur borga)
    Þetta sögðu forseti Frakklands og Brussel-embættismenn um helgina

    Góður liðsauki bættist við með björtu ljósi vitavarða Evrópuvaktarinnar
    Evrópuvaktin hefur opnað vefsetur og viti þeirra lýsir frá og með nú




    Posted May 24, 2010 10:32 AM by Gunnar Rögnvaldsson
  • Samantekt vika 18 2010
    Óttinn ræður ríkjum
    Það tekur að meðaltali 75 ár eða lengur að breyta landi sínu úr svo kölluðu "nýmarkaðslandi" og yfir í "þróað hagkerfi"

    Pottþétt Ponzi kerfi seðlabanka Club Med?
    Austurríska dagblaðið Der Standard skrifar að ECB-seðlabanki ESB taki nú á móti grískum ríkisskuldabréfum alveg án tillits til hvort þau hafi náð lágmarks lánshæfniseinkunn hjá alþjóðlegum matsfyrirtækjum eða ekki. Þetta er ábyrgðarlaust hjá ECB-seðlabankanum segir blaðið

    Þýsku ríkisstjórninni stefnt í stjórnarskrárréttinn
    Fjórir prófessorar í Þýskalandi gáfu út þá yfirlýsingu í gær að þeir ætli draga ríkisstjórnina í stjórnarskrárréttinn þann sama dag sem aðstoð Þýskalands við Grikkland verður samþykkt í þinginu

    Tvennir tímar
    Þar kom bankastjóri Deutsche Bundesbank, Otmar Emminger, í þáttinn og fræddi viðmælendur um viðhorf þýska seðlabankans til verðbólgu. 

    Orð róma og orðrómur verður til. Geðbilun eða hvað?
    Úr ýmsum áttum hafði sá orðrómur borist að Spánn væri í þann mund að biðja um 280 þúsund milljónir af evrum frá … tja … frá þeim löndum í myntbandalaginu sem eru minna illa stödd er Spánn er

    Leiðin út er í gegnum lokað og læst bankakerfið
    Poul Krugman Nóbels hagfræðingur heldur að gríska björgunaraðgerðin muni mistakast

    Svört forsíða Handelsblatt
    Það er hægt að lýsa sterkri óánægju með ýmsu móti. Eitt stærsta viðskiptadagblað Þýskalands gerði það með því að hafa forsíðu prentuðu útgáfu blaðsins svarta

    Seðlabanki Evrópusambandsins fylltur af rusli
    Þýska dagblaðið Die Welt sagði að seðlabanki ESB tæki nú á móti ruslpappírum því bankinn ætlar að slaka á kröfum sínum til veðhæfni trygginga fyrir ferskum peningum úr bankanum vegna Grikklands.

    Ríkisstjórn Finnlands biður um aukafjárveitingu vegna vaxandi ófærðar á "finnsku leiðinni"
    Finnska ríkisstjórnin hefur beiðið um að þingið samþykki aukafjárveitingu á fjárlögum upp á 1,5 milljarð evrur (255 miljarða krónur) sem senda á til Grikklands

    Endurreisn þýska Weimarlýðveldisins í allri Evrópu?
    Þann fyrsta janúar árið 1981 gekk Grikkland í Efnahagsbandalag Evrópu sem síðan breytti sér sjálft í Evrópusambandið árið 1993. Það eru því liðin heil 29 ár síðan landið gekk í þennan félagsskap sem svo margir hafa sagt að sé svo góður fyrir lönd Evrópu




    Posted May 9, 2010 9:34 AM by Gunnar Rögnvaldsson
  • 9,6% atvinnuleysi í Evrópusambandinu í mars 2010 − 10% á evrusvæði
    Í mars mánuði misstu 123 þúsund manns vinnuna í Evrópusambandinu. 
    Atvinnuleysi var mest ERM-landinu Lettlandi (22,3 prósent), evrulandinu Spáni (19,1 prósent), ERM-landinu Litháen (15,8 prósent), ERM-landinu Eistlandi (15,5%), evrulandinu Slóvakíu (14,1 prósent), evrulandinu Írlandi (13,2 prósent). Alls eru rúmlega 23 miljón persónur án atvinnu í ESB.

    Atvinnuleysi ungmenna undir 25 ára aldri mældist 20,6 prósent í 27 löndum ESB og 19,9 prósent á evrusvæðinu. Mest var atvinnuleysi ungs fólks á Spáni en þar ríkir 41,2 prósent atvinnuleysi hjá ungu fólki. 


    Nánari tölur hér: Atvinnuleysi í ESB núna
    Posted May 2, 2010 1:02 AM by Gunnar Rögnvaldsson
  • Samantekt: vika 17 2010
    Hefur seðlabanki ESB og myntbandalagið málað sig út í horn?
    Evrusvæðið er nú hinn veiki maður heimsins (e. the sick man of the World). Fleiri og fleiri óhagstæð atriði safnast saman. Vandamál myntbandalagsins hófust þegar það var stofnað. Það var stofnað af pólitískum ástæðum, það var fyrsta vandamál þess.

    Flutningur og uppfærsla gluggans á næstu vikum
    Næstu vikur verða dálítið erfiðar hjá mér vegna búferlaflutninga okkar heim til Íslands. Búast má við að suma daga á næstu vikum gætu skrif mín hérna í gluggann orðið frekar óregluleg tímalega séð - og jafnvel fallið niður einhverja daga. 

    Dyrnar að evrópska seðlabankanum að lokast
    Ríkissjóður Grikklands er því rétt einni verri Fitch-einkunninni frá því að verða lokaður úti frá ECB-seðlabanka landsins. Sá banki er staðsettur í Frankfürt í Þýskalandi og er í umsjá Brussel og Þýskalands.

    Byggt á sandi
    Danske Bank skrifaði í gær að grunnur og sökkull myntbandalagsins sé nú óbætanlega skaðaður.

    Nýr sannleikur að myndast?
    Það er engu líkara en að sú vissa sé að myndast á markaði fyrir skoðanir að nú sé óhætt að segja það sem svo margir vissu alltaf, en fengu ekki leyfi til að segja opinberlega og á prenti.

    Mr Papadependencyfreelunchopoulos
    Nú tala sumir fjölmiðlar aftur gamla tungumálið. Nú er ekki lengur endilega talað um skuldabréfamarkað "evrusvæðis" heldur um skuldabréfamarkað "Suður-Evrópu".

    Gengis Kahn finnur ekki gengið í Grikklandi
    AGS fann ekkert gengi né mynt í Grikklandi. Því næst skoðuðu þeir ríkisfjármálin. Þar fann AGS lítið annað en tóman skáp. Brussel er með ríkisbókhald Grikklands núna, því landið er svo fullvalda.

    Hvernig vörn er myntbandalagið?
    Hraðast vaxandi er áhættan í myntbandalagslöndum Evrópusambandsins. Grikkland fer að nálgast 50/50 líkur á því að fara í þrot. 

    Það sem er ekki undir ljósastaurum
    Poul Krugman og Robin Wells hafa skrifað bókadóm um nýlega bók Kenneth S. Rogoff og Carmen M. Reinhart (This Time Is Different: Eight Centuries of Financial Folly).

    Áfram heldur markaðurinn leitinni
    Nú er það Portúgal. Simon Johnson og Peter Boone voru með ágætis grein um hvað mun sennilega gerast næst, fyrir utan og undir ljósastaurum evrulanda

    Verður smíðaður björgunarhringur fyrir Grikkland?
    Aukin alvara og harka er að færast í umræður um hugsanlegar björgunaraðgerðir evruríkja til handa Grikklandi

    Skoðanakönnun Die Welt
    Í þýska blaðinu Die Welt var í gær sagt frá því að reiði sé komin upp vegna þess hraða sem krafist er að sé viðhafður svo hægt verði að skipa út peningum þýskra skattgreiðenda til Grikklands strax.

    Virkar björgunarhringur ESB í Grikklandi?
    Efasemdir eru komnar upp í Þýskalandi og á fleiri stöðum um gagnsemi þess að bjarga Grikklandi frá þroti.

    Mikilvægasta vika í lífi myntbandalagsins er nú framundan
    Wolfgang Münchau segir í nýrri grein í Financial Times að þessi vika muni ráða úrslitum um hvort hægt verði að takmarka skuldakreppuna við Grikkland

    Óskhyggja og vilji er ekki nóg
    Brendan Keenan segir í Irish Times að fantasía, reglugerðir og pólitískur vilji geti ekki borið uppi mynt Evrópusambandsins lengur




    Posted May 1, 2010 10:44 AM by Gunnar Rögnvaldsson
  • Samantekt: vika 16 2010
    Grikkland leitar til Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins
    Mr. Dominique Strauss-Kahn, Managing Director of the International Monetary Fund (IMF), issued the following statement today on Greece:

    Grikkland ætti að yfirgefa myntbandalagið
    Öndverðar skoðanir á aðkallandi fjárhagsvanda gríska lýðveldisins geisa meðal þýskra ráðamanna

    AGS: Ekki hægt að yfirgefa myntbandalagið
    "Það eru engar heimildir til fyrir slíku í neinum sáttmálum myntbandalagsins"

    Nýjar tölur yfir taprekstur ríkissjóða evrulanda
    Tekjurnar eru fallandi og skuldir aukast hratt. Ríkissjóður Írlands setti met með 14,3% taprekstri

    Betri hagspá fyrir allan heiminn nema evrulönd
    Spáð er betri hagvexti fyrir alla nema þá eru svo óheppnir að búa á evrusvæðinu

    Úr kennslustund Litlu gulu hænunnar
    Þeir sem halda ennþá að Evrópusambandið sé "tolla- og efnahagsbandalag" rétti upp hönd. Þetta gæti orðið spurning í kennslustund í sjö ára bekk í barnaskólum Evrópu eftir aðeins nokkur ár. Þeir sem réttu upp hönd fengju annað hvort rétt eða væru reknir út.

    Atvinnuástand nýútskrifaðra í Danmörku
    Atvinnuleysi meðal nýútskrifaðra hagfræðinga, lögfræðinga, sálfræðinga, verkfræðinga og álíka starfsheita í Danmörku komið í 26,9 prósent

    Mannrán hjá seðlabanka Danmerkur
    Í fyrsta sinn hin síðastliðin 25 ár hefur háttsettum starfsmanni verið rænt úr starfi hjá  seðlabanka Danmerkur

    ESB-aðför að danska húsnæðislánakerfinu
    Þessi breyting á regluverki ESB mun þýða að húsnæðisverð í Danmörku verður sprengt til baka í tíma um 18 ár

    Borgarísjaki evrusvæðis
    Nýjar ESB reglur munu kosta 40.000 manns vinnuna í DK
    Bestu dagar þýskra ríkisskuldabréfa eru búnir. Verið er að flytja áhættu og fjárskuldbindingar annarra ríkja yfir á herðar Þjóðverja. Auðæfi Þýskalands eru ekki ótæmandi. Þetta getur kostað þýska ríkissjóðinn svipað og sameining Þýskalands

    The Endgame? Þrotabú kaupir hlut í öðru þrotabúi
    Írski hagfræðingurinn David McWilliams segir að Írland eigi að fara fram á að verða tekið til gjaldþrotameðferðar

    Björgun seinkar aðeins evruríkisgjaldþroti Grikklands
    Wolfgang Münchau skrifaði í Financial Times í gærkvöldi að Grikkland væri nú þegar gjaldþrota og allar björgunaraðgerðir evrulanda og AGS muni aðeins seinka ríkisgjaldþroti Grikklands um stund.

    Engin evra handa Eistlandi?
    Skyndilegt spurningarmerki við aðgengi Eistlands að myntbandalagi Evrópusambandsins

    Rúmenía hættir líklega við evruupptöku í bili
    Seðlabankastjórinn segist ekki hafa getað farið á veitingahús síðastliðin tvö ár

    Efnahagslegt sjálfsmorð að stofna fjölskyldu í Ungverjalandi
    Betti Varga skrifar í Komment.hu að það sé nær ógerningur að stofna fjölskyldu í Ungverjalandi án þess í leiðinni að fremja efnahagslegt sjálfsmorð




    Posted Apr 23, 2010 7:40 PM by Gunnar Rögnvaldsson
  • Samantekt: vika 15 2010
    Grikkland leitaði til AGS í gær
    Í gær leitaði Grikkland til Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins (AGS). Sérsveit sjóðsins mun lenda í Aþenu á mánudag til að hefja viðræður um aðstoð

    Næst, Portúgal?
    Næst á ratsjánni verður Portúgal. Flestum hafa yfirsést mikil og aðkallandi vandamál Portúgals vegna þess að þeir hafa verið of uppteknir við Grikkland

    Morgan Stanley: endalok evru?
    Joachim Fels stefnustjóri heimsviðskipta með gjaldeyrir hjá stórbankanum Morgan Stanley segir í nýjustu útgáfu "The Global Monetary Analyst" að endalok evru í núverandi mynd séu ekki ólíkleg

    Hugleiðing: Höfum við áður staðið með svona taflstöðu?
    Hefur Evrópa áður staðið í þeim sporum að eiga á hættu að skipta alls engu máli. Hvað sjáum við í heiminum í dag? Hvað er að gerast? Hvert mun "gáfað fjármagn" leita núna og í framtíðinni?

    Einsdæmi: farið var á bak við Þýskaland í málefnum myntbandalagsins
    Þau óhugnanlegu tíðindi hafa borist til eyrna þýskra fjölmiðla að Frakkland, Ítalía og embættismenn seðlabanka Evrópusambandsins hafi farið á bak við kanslara Þýskalands og þar á eftir þvingað hana til að samþykkja stærsta ríkislánapakka mannkynsögunnar

    Viðbrögðin í Þýskalandi eru hörð og sár
    Hagfræðiprófessor Wilhelm Hankel: segir að hann muni stefna ríkisstjórninni ef Grikkland fær lánið. Í opnu bréfi til Angelu Merkel sagði Hankel að kanslarinn ætti að vinna að því að evrulöndin gætu fengið sínar gömlu myntir aftur

    Svíar meira og meira andsnúnir evruupptöku
    Skoðanakönnun meðal Svía um hvort þeir vilji fórna sænsku krónunni og taka upp evru. Niðurstaðan er sú að 55 prósent sögðu nei og aðeins 37 prósent aðspurðra sögðu já

    Hin hlaðna skammbyssa Grikklands loksins komin á borðið?
    Byssuhleðsla Grikklands er sem sagt þetta loforð frá öðrum evruríkjum um að þau ætli að lána ríkissjóði Grikklands 30 miljarða evrur, ef svo skyldi fara að Grikkland gæti ekki lengur fengið peninga að láni hjá nýjum "vondum fjárfestum" á frjálsum markaði til að borga vexti af gömlum lánum ríkisins

    Gott ráð til fjárfesta í ríkisskuldum evrusvæðis
    Ef við ættum að halda áfram að kaupa skuldir af ríkissjóði Þýskalands þá verða þeir að bjóða okkur betri ávöxtun en þetta, því nú getum við fengið "þýskar ríkisskuldir" hjá gríska ríkinu á 6-7% ávöxtun. Er þetta ekki frábært?

    Dósinni sparkað áfram eitt ár niður eftir götunni
    Simon Johnson fyrrverandi yfirhagfræðingur AGS segir að þetta lánsfjárloforð evruríkja til Grikklands muni einungis hafa þau áhrif að nú geta "skynsamir peningar" (e. smart money) forðað sér frá Grikklandi án þess að tapa of miklu

    Lánapakkinn engin lausn fyrir evrusæðið
    Grikkland sé eins og Bear Stearns bankinn sem var ekki sendur í gjaldþorþrot. En svo komi hugsanlega Portúgal og Spánn

    Loftið fór úr kanslara Þýskalands
    Stóri taparinn í þessu máli er Angela Merkel. Ef Grikkland þarf að nota þennan lánapakka þá mun ríkisstjórn Þýskalands verða stefnt fyrir stjórnarskrárdómstól landsins

    Erfið pilla fyrir hin vandræðaríki evrusvæðis
    Það verður erfitt fyrir írska skattgreiðendur að kyngja þessu eftir að allt bankakerfi þess lands er svo að segja hrunið ofan á þjóðina.

    Fregnir af sáttmálabrotum ESB í nafni "efnahagslegs stöðugleika"
    Lex dálkur Financial Times skrifar að hinn efnahagslegi raunveruleiki hafi hitt aðila myntbandalags Evrópusambandsins með braki og brestum

    Án hjálpar Þýskalands mun myntbandalagið leysast upp
    George Soros: 50/50 líkur á að myntbandalag Evrópusambandsins leysist upp komi Þýskaland Grikklandi ekki til hjálpar

    Lánshæfnismat ríkissjóðs og bankakerfis Grikklands lækkað
    Fitch lækkaði lánshæfnismat ríkissjóðs Grikklands enn frekar á föstudaginn




    Posted Apr 18, 2010 11:42 AM by Gunnar Rögnvaldsson
  • Samantekt: vika 14 2010
    Hvernig er að vera seðlabankastjóri á evru?
    Sú hugsun féll að mér að það hljóti að vera ákaflega erfitt að vera bankastjóri seðlabanka Evrópusambandsins (ECB). Varla hefur harður evruandstæðingur verið ráðinn til þess starfs. Ekki er heldur hægt að hugsa sér að harður ESB-andstæðingur sitji þar við stjórnvölinn

    Gjaldþrot og nauðungaruppboð í Danmörku í mars
    Danska hagstofan birti í morgun tölur yfir nauðungaruppboð og gjaldþrot fyrirtækja í mars mánuði

    Hvernig seðlabanki 16 landa evrusvæðis varð að spilavél - og Argentínur evrusvæðis
    Þetta reglu-kerfi seðlabankans hefur verið misnotað og það er seðlabankinn sem hefur leyft þessa misnotkun á sjálfum sér. Hann átti að vera óháður, en er það auðvitað ekki, frekar en annars staðar í heiminum

    ER þetta það sem koma skal?
    Um daginn var tilkynnt að það væri ódýrara að tryggja sænskar ríkisskuldir gegn greiðslufalli en þýskar ríkisskuldir. Þar áður var tilkynnt að ódýrara væri að tryggja danskar ríkisskuldir gegn greiðslufalli en þýskar

    Grikkland varð varnarlaust land árið 2001
    Frá árinu 2000 hefur verðbólga í Grikklandi ekki fallið inn undir einnar-skóstærðar peningapólitík þess seðlabanka í Frankfurt sem stýrir verðinu á peningum í Grikklandi

    Meira um landfræði- og menningarleg forréttindi
    Það er mín bjargfasta sannfæring að ESB sé að fara í hundana. Ekki allt svæðið, en stærstu og mest afgerandi hlutar þess

    Grikkland (ó nei, ekki meira)
    Það er álit Wolfgangs Münchau að Grikkland muni óhjákvæmilega fara í þrot. Það sem verra er: Grikkland mun fara í þrot inni í evrusvæðinu

    Markaðurinn gerir sér ekki ennþá grein fyrir þessu
    Ambrose Evans-Pritchard snæddi hádegisverð með prófessor Carmen M. Reinhart. Carmen Reinhart segir að Grikkland muni ekki sleppa úr skuldagildrunni á meðan landið er í myntbandalagi Evrópusambandsins

    Bandaríkjadalur er ekki á leiðinni út
    Bandaríkjadalur er ekki á leiðinni út. Hlutverk og hlutdeild dollara í heimsviðskiptum hefur ekki minnkað neitt að ráði síðan evran kom á markað

    Fallandi skattatekjur og aukin útgjöld hins opinbera
    Skattatekjur Írlands féllu um 15 prósent á milli fyrsta fjórðungs áranna 2008-2009. Skattagreiðslur frá fyrirtækjum féllu um 73,8 prósent og um 34,7 prósent af fjármagnstekjum




    Posted Apr 11, 2010 3:34 AM by Gunnar Rögnvaldsson
Showing posts 1 - 8 of 25. View more »

Eldri pistlar, fréttaskýringar og efni


Skjalasafn frétta - erlent & innlent
Fréttasafn frá 14. desember 2008 til 18. desember 2009


Frá heimasíðu Nej til EU í Noregi


EU krever tilpasning på forhånd: I forhandlingene mellom Norge og EU i 1994 skulle norske lover tilpasses EU bare dersom det ble ja-flertall i folkeavstemningen. I dag krever EU at Island må EU-tilpasse lovene i landet mens forhandlingene om medlemskap pågår.

Forhandlingene med EU skaper stadig nye problemer for regjeringen på Island. EU-kommisjonen påtvinger islendingene forhandlinger der de må EU-tilpasse samfunnet sitt mens forhandlingene pågår: Krækja

Liðnar vikur gluggans:> skráarlisti gluggans

Smá pása: Uppfærsla gluggans og efnis á næstunni
Síðustu 12 mánuðir hafa verið dálítið erfiðir hjá mér vegna búferlaflutninga okkar heim til Íslands. Dagleg skrif mín hérna á síðunni verða óregluleg á næstunni. Á meðan bendi ég lesendum á bloggsíðu mína og Evrópuvaktina

Hagvöxtur Norðurlanda 2009: Hvort er verra fyrir hagvöxtinn, evran eða hrun heils bankakerfis?
Land
Hag-vöxtur
Út-flutningur
Mynt
Atv.leysi des.
Slóð
Finnland
-7,8%
-24,0%
Evra
8,8%
Ísland
-6,5%
+6,2%
Króna V8
6,7%
Danmörk
-5,1%
-10,7%
Fastgengi
7,4%
Svíþjóð
-4,9%
-12,5%
Króna
8,9%
Noregur
-1,5%
-4,5%
Króna
3,3%

Þema: endalok hagvaxtar í Þýskalandi


Undirstaða hagkerfa og hagsældar þeirra er fólkið sjálft. Ein spurning sem varðar samfélög sem endurnýja ekki þessar undirstöður sínar gæti verðið þessi: 
af hverju er hagvöxtur í Þýskalandi að hverfa? Þýskalandi 
vantar núna og á næstu árum 70.000 lækna til að þjóna þegnum þýska hagkerfisins, því það hafa fæðst svo afskaplega fá börn í þessu samfélagi svo lengi. Það verða engir til að taka við störfum 70.000 lækna sem munu yfirgefa vinnumarkaðinn í Þýskalandi  á næstu örfáu árum. 

Í þýskalandi er verið að rífa niður 1,2 milljón tómar íbúðir núna. Til viðbótar þarf að annast eða rífa þar niður 1 miljón tómar íbúðir í viðbót fram til ársins 2015. En staðan er jafnvel ennþá verri í stórum hluta Evrópusambandsins. Er þetta stöðugleikinn? Er þetta "vélin" í Evrópusambandinu? Er þetta framtíðin? Hver á að borga?




Sælir kæru lesendur


Þetta vefsetur mitt, Gunnars Rögnvaldssonar, er tileinkað sjálfstæði Íslands. Það er auðvelt að muna slóðina á þessa síðu því nafnið byggist á reynslu og tilveru minni í ESB síðastliðin 24 ár. Best er að muna nafnið á þessu vefsetri með því að tengja saman orðin tilveran í esb á netinu: www.tilveraniesb.net

Það er álit mitt að það væru mistök árþúsundsins ef Ísland gengi í Evrópusambandið. Heimurinn er miklu stærri en svo að það sé ráðlegt að binda Ísland of þétt við hið hnignandi samfélag Evrópusambandsins, því dragsúgurinn verður þar mikill í framtíðinni

Ég mun uppfæra þessa síðu að staðaldri með þó nokkru af nýmeti og áherslum sem tengjast sjálfstæði Ísland og baráttu fyrir að svo megi verða áfram. Þetta vefsetur er persónulegt málgagn mitt og því ekki hlutlaus veðurathugunarstöð. Ég hef ekki ennþá séð hlutlausa umfjöllun um pólitík. 

Málefni Evrópusambandsins eru fyrst og fremst pólitísks eðlis. Það er langt síðan Evrópusambandið hætti að vera efnahagsbandalag. Það sem er í gangi í Evrópusambandinu núna og næstu mörg árin er hinn pólitíski samruni landa ESB. 
Einungis frjálst og fullvalda Ísland mun geta búið til þá velmegun og farsæld sem er svo bráðnauðsynleg til að áframhald getir orðið fyrir íslensku þjóðina næstu 1000 árin

Einungis fullt sjálfstæði mun ala af sér þá nauðsynlegu sjálfsbjargarviðleitni og sjálfsábyrgð sem er forsenda frelsis, velmegunar og fullveldis. Vöðvar frelsisins verða að vera virkir, þeir þola ekki spennitreyjur, því þá visna þeir. Frelsið þarf því að iðka af fullum krafti - það er vöðvabúnt heilans og okkar dýrmætasta auðlind

Því langar mig að legga mitt af mörkum til að Ísland megi vera fullvalda og sjálfstætt ríki áfram. Ég óttast að verið sé að markaðsfæra ESB á Íslandi á svipaðan hátt og reynt var að markaðsfæra hin nú hrundu Sovétríki á Íslandi fyrr á tímum, eða sem hamingjunnar paradís. Allir vita núna hvernig var á bak við tjöldin þar 

Bestu kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson


Glugginn - vikuskrár - vefsnið



Glugginn - vikuskrár - PDF-snið

  • PDF_utgafa_vika_19_og_20_2010.pdf   1334k - May 24, 2010 10:10 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_18_2010.pdf   1206k - May 9, 2010 9:23 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_17_2010.pdf   1176k - May 1, 2010 10:31 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_16_2010.pdf   990k - Apr 23, 2010 7:24 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_15_2010.pdf   730k - Apr 18, 2010 11:53 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v3)
  • PDF_utgafa_vika_14_2010.pdf   1187k - Apr 11, 2010 3:20 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_13_2010.pdf   897k - Apr 5, 2010 7:37 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_12_2010.pdf   1534k - Mar 26, 2010 6:22 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_11_2010.pdf   1317k - Mar 21, 2010 5:21 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_10_2010.pdf   1250k - Mar 14, 2010 8:17 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Vika_9_2010_PDF_utgafa.pdf   1138k - Mar 7, 2010 12:24 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_8_2010.pdf   1492k - Feb 28, 2010 4:16 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_vika_7_2010.pdf   1389k - Feb 21, 2010 10:21 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • PDF_utgafa_VIKA_6_2010.pdf   1671k - Feb 14, 2010 5:03 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Föstudagur 5. febrúar 2010.pdf   1328k - Feb 7, 2010 4:50 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Fostudagur_29_januar_2010.pdf   1314k - Feb 1, 2010 12:12 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Fostudagur_22_januar_2010.pdf   1022k - Jan 23, 2010 10:38 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v3)
  • Fostudagur_15_januar_2010.pdf   943k - Jan 18, 2010 10:16 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v3)
  • Fostudagur_8_januar_2010.pdf   1488k - Jan 10, 2010 11:13 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Fostudagur_1_januar_2010_Nyarsdagur.pdf   484k - Jan 3, 2010 8:43 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Midvikudagur_23_desember_Ketkrokur.pdf   866k - Dec 27, 2009 6:11 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Fostudagur_18_desember_2009_Hurdas_.pdf   336k - Dec 20, 2009 1:58 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 50 Fostudagur_11_desember_2009.pdf   837k - Dec 14, 2009 11:46 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 49 Fostudagur_4_desember_2009.pdf   547k - Dec 14, 2009 11:45 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 48 Fostudagur_27_november_2009.pdf   55k - Dec 14, 2009 11:45 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 47 Fostudagur_20_november_2009.pdf   813k - Dec 14, 2009 11:45 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 46 Fostudagur_13_november_2009.pdf   472k - Dec 14, 2009 11:44 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 45 Fostudagur_6_november_2009.pdf   658k - Dec 14, 2009 11:44 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 44 Fostudagur_30_oktober_2009.pdf   642k - Dec 14, 2009 11:43 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 43 Fostudagur_23_oktober_2009.pdf   407k - Dec 14, 2009 11:43 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 42 Fostudagur_16_oktober_2009.pdf   655k - Dec 14, 2009 11:43 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 41 Fostudagur_9_oktober_2009.pdf   326k - Dec 14, 2009 11:42 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 40 Fostudagur_2_oktober_2009.pdf   676k - Dec 14, 2009 11:41 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 39 Fostudagur_25_september_2009.pdf   633k - Dec 14, 2009 11:41 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 38 Fostudagur_18_september_2009.pdf   1152k - Dec 14, 2009 11:40 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • 2009 37 Fostudagur_11_september_2009_.pdf   322k - Dec 14, 2009 11:40 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
Showing 36 files from page Vikuskrár frétta PDF.

Nýjustu skrár

Ýmsar athyglisverðar skrár og gögn úr ýmsum áttum, oftast á PDF-sniði
  • September 2010 Euro area unemployment rate at 10.13-29102010-AP-EN.pdf   202k - Oct 29, 2010 7:45 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Atvinnuleysi í Evrópusambandinu í september 2010 - hagstofa ESB.PDF‎
  • Atvinnuleysi í Evrópusambandinu í mars 2010 - hagstofa ESB.PDF   202k - May 1, 2010 11:45 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Leiðari Handelsblatt 9 apríl 2010 - Koss dauðans frá Frankfurt.pdf   623k - Apr 9, 2010 7:16 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Leiðari Handelsblatt 9 apríl 2010 - Koss dauðans frá Frankfurt.png   844k - Apr 9, 2010 7:15 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • eucharts 12th march 2010.pdf   80k - Mar 15, 2010 4:18 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎The New York Federal Reserve Euro Area charts March 12, 2010‎
  • global-economic-outlook.pdf   129k - Feb 3, 2010 2:48 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎World Economic Forum Annual Meeting 2010 - Global Economic Outlook - Davos-Klosters, Switzerland 30 January‎
  • MENON-Politikkforvekstogsysselsetting2009.pdf   488k - Jan 25, 2010 7:13 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Norsk skýrsla: stefna fyrir vöxt og atvinnu. Norska greiningarstofnunin, MENON Business Economic, hefur skilað af sér skýrslu til viðskipta- og efnahagsmála ráðuneytis Noregs um efnahagsstöðu Noregs miðað við efnahag ESB og landa þess‎
  • Efnahagslegt sjálfstæði Íslendinga Ft97-2_6.pdf   43k - Jan 25, 2010 7:10 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Efnahagslegt sjálfstæði Íslendinga. Erindi eftir Jóhannes Nordal. Flutt á Söguþingi í Reykjavík þann 31. maí 1997‎
  • The New York Federal Reserve Euro Area Charts 22 janúar 2010.pdf   79k - Jan 22, 2010 9:40 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Meginrök Bændasamtakanna gegn aðild að ESB.pdf   398k - Jan 16, 2010 2:14 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Bændasamtök Íslands hafa um árabil afdráttarlaust tekið afstöðu gegn aðild að ESB. Þessa eindregnu stefnu byggja samtökin á upplýsingum sem þau hafa aflað sér árum saman. Afstaðan hefur styrkst af viðræðum við bændur og skoðunum aðildarfélaga um allt land.‎
  • The New York Federal Reserve Euro Area Charts 15 desember 2009.pdf   79k - Dec 16, 2009 6:11 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
  • Ræða JS Reykjanesbæ.pdf   167k - Nov 25, 2009 8:06 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Ræða Jóhönnu Sigurðardóttur, formanns Samfylkingarinnar, á fundi flokksstjórnar í Reykjanesbæ laugardaginn 21. nóvember 2009‎
  • top50waste.pdf   228k - Nov 20, 2009 10:00 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎50 dæmi um sóun fjármuna sem ESB er trúað fyrir og sem eru innheimtir í ríkjum sambandsins. OPEN EUROPE’S 50 NEW EXAMPLES OF EU WASTE‎
  • PP_TDS_final-2009-00244-01.pdf   168k - Nov 16, 2009 1:38 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Time-Distance Study 2009. Using the time-distance methodology, the study compares Europe with the USA and the BRIC countries for a number of key economic indicators‎
  • Héraðsatvinnuleysi í ESB EES 1999 til 2008.pdf   1535k - Nov 12, 2009 11:32 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Atvinnuástand í löndum, héruðum landa og nýlendum ESB 1999-2008 ásamt tölum frá Íslandi, Noregi, Sviss og Lichtenstein. Ca. 17.000 tölur úr ca. 1700 héruðum ESB‎
  • howtheeuiswatchingyou.pdf   250k - Oct 26, 2009 11:34 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎How the EU is watching you: the rise of Europe’s surveillance state; 26 October 2009. As ratification of the EU Lisbon Treaty draws closer, new research from Open Europe warns that the Treaty will help accelerate moves towards an EU surveillance state.‎
  • Price levels varied by one to three across the EU27 Member States2-16072009-AP-EN.PDF   120k - Oct 25, 2009 11:39 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v2)
    ‎Verðlagskönnun hagstofu ESB fyrir árið 2008. (Consumer price levels in 2008.). Hér er í reynd verið að kanna hve mikið þú færð fyrir peningana á milli landa EES og ESB. ‎
  • Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnar.pdf   224k - May 10, 2009 4:57 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v2)
    ‎10. maí 2009: Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnar. Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ‎
  • Is The Euro Sustainable.pdf   516k - Jan 22, 2010 5:34 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v2)
    ‎Is the euro Sustainable?‎
  • Hin Seinni Stóra Heimskreppa að hefjast í Evrópusambandinu.pdf   521k - Jan 14, 2009 2:22 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Öldrun og fækkun þegna í Evrópusambandinu. Hin mikilvægasta og að því er virðist hin óendurnýjanlegasta auðlind Evrópu - fólkð sjálft. Náttúruauðlind í útrýmingarhættu Cesifo hugveitan hélt ráðstefnu um fólksfækkunarvandamál Evrópusambandsins í München í Þýskalandi árið 2007. Samkæmt fyrirlestri prófessor Hans Werner Sinn þá vantar hin 15 gömlu lönd Evrópusambandsins 194 milljón innflytjendur fram til ársins 2035, til þess eins að viðhalda núverandi vinnuafli‎
  • Útflutningur sjávarafurða á hvert mannsbarn_2005.pdf   890k - Jan 11, 2009 11:34 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Mikilvægi sjávarútvegs: útflutningsverðmæti fiskur: á hvert mannsban á Íslandi og Noregi borið saman við útflutningsverðmæti fisks á hvert mannsbarn í löndum Evrópusambandsins. Ár 2005. Mynt: Bandaríkjadalur‎
  • the-likely-future-of-the-eurozone-jan-5-2008.pdf   603k - Jan 8, 2009 9:36 PM by Erlent Innlent (v1)
    ‎The Likely Future of the Eurozone - Simon Johnson MIT, Peterson Institute for International Economics, and NBER‎
  • EU drools at the prospect of swallowing Iceland.pdf   77k - Jan 6, 2009 9:26 PM by Erlent Innlent (v2)
    ‎Frá Daniel Hannan Weblog: ESB slefar yfir tilhugsuninni yfir að gleypa Ísland‎
  • Open Europe hardsell.pdf   1995k - Jan 5, 2009 10:22 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Samkvæmt rannsóknum Open Europe þá eyðir Evrópusambandið tveim miljöðrum punda í áróður fyrir sínu eigin ágæti - og það vel að merkja á hverju ári! Rannsókn Open Europe á PDF formi‎
  • CredibilityCrunch.pdf   769k - Dec 16, 2008 10:03 PM by Erlent Innlent (v2)
    ‎The EU has been a major contributor to the economic malaise of Western Europe. Its policies have helped cause and accentuate the downturn; and its plans for recovery are either counterproductive or irrelevant to the present situation‎
  • EUROCHAMBRES Study2005 press.pdf   124k - Dec 16, 2008 5:08 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v2)
    ‎Fréttatilkynning: EuroChambers 2005: US economy ahead of EU by at least 20 years ‎
  • 2008 TimeDistanceStudy-2008.pdf   128k - Dec 16, 2008 5:07 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v2)
    ‎Euro-Chambres; The Association of European Commerce and Industry: Time Distances 2008 ‎
  • 2007 070305-TimeDistanceStudy2.pdf   568k - Dec 16, 2008 5:07 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v2)
    ‎Euro-Chambres; The Association of European Commerce and Industry: Time Distances 2007 ‎
  • 2005 publication eurochambres pavle sicherl.pdf   92k - Dec 16, 2008 5:07 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v3)
    ‎Euro-Chambres; The Association of European Commerce and Industry: Time Distances 2005‎
  • THE SIZE AND FUNCTIONS OF GOVERNMENT AND ECONOMIC GROWTH.pdf   184k - Dec 13, 2008 11:13 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Hvaða áhrif hefur stærð hins opinbera geira á möguleika þjóða til hagvaxtar? Gert fyrir: Joint Economic Committee USA‎
  • CATO - What Can the United States Learn from   504k - Dec 13, 2008 10:55 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎Hvað geta Bandaríkin lært af efnahagslíkani Norðurlanda?‎
  • The real effects of the EMU PRINTED.pdf   125k - Jan 17, 2009 2:35 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v3)
    ‎The Real Effects of European Monetary Union - Philip Lane . Hvaða þýðingu hefur myntbandalag Evrópusambandsins haft fyrir efnahag, verslun og viðskipti á myntsvæði evru ‎
  • European Monetary Union; the dark sides of a major success.pdf   710k - Dec 13, 2008 11:19 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v2)
    ‎European Monetary Union; the dark sides of a major success - Charles Wyplosz. Um forsögu myntbandalags ESB og hinu dökku hlið á velheppnaðri framkvæmd. Hvar eru peningarnir? Hvar er árangurinn fyrir þegnana? Show me the money!‎
  • Notat_-_Amerikanske_tilstande_HFR.pdf   57k - Dec 13, 2008 11:17 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v3)
    ‎Hugveitan Ceops um það sem Danir kalla "amerískt ástand. Margir Danir (og fleira fólk í örðum þjóðfélögum) trúir því að allt sé slæmt í Bandaríkjunum. Þáttur fjölmiðla í að viðhalda þessari mýtu og fordómum‎
Showing 34 files from page Gögn og skrár.

Skoðanakannanir

  • Introduction of the euro in the new Member States fl_296_en.pdf   5293k - Nov 6, 2010 6:28 AM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎More than 6 in 10 (63%) of the surveyed countries’ citizens believed that their nation had a choice as to whether it could adopt the euro, even though the Accession Treaty obliges all new Member States to join the euro area. Just over a quarter of respondents (28%) correctly answered that their country had no choice in this regard. About a tenth (9%) of interviewees did not know how to answer the question. Blaðsíða 11.‎
  • PI-D-Markzurück_Juni2010.pdf   58k - Nov 5, 2010 10:34 PM by Gunnar Rögnvaldsson (v1)
    ‎28. júlí 2010. Merihluti Þjóðverja vilja fá þýska markið aftur. ‎
Showing 2 files from page Skoðanakannanir.


Eldri pistlar, fréttir og efni 2008-2009


Skjalasafn frétta - erlent & innlent
Fréttasafn frá 14. desember 2008 til 18. desember 2009