Skjaldarmerki íslenska lýðveldisins

Share

Efnahagur ESB og Eurochambers

The Association of European Commerce and Industry. Viðskiptaráð Íslands er aðili að þessum samtökum.


 Samkæmt rannsóknum Eurochambers er efnahagur Evrópusambandsins alltaf að dragast meira og meira aftur úr efnahag Bandaríkjanna
 
 Núna er ESB 22 árum á eftir BNA í þjóðartekjum á hvern mann

 og heilum 30 árum á eftir BNA í rannsóknum og þróun

 Það sem enn verra er þá fer þetta bil breikkandi en ekki minnkandi

780days since
dagar síðan íbúar Evrópusambandsins áttu að vera orðnir ríkastir í heiminum samkvæmt Lissabon 2000 markmiðum Evrópusambandsins

Hverjir búa til atvinnu í ESB?

Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins

Mælingar á frammistöðu Evrópusambandsins miðað við sett markmið sambandsins í Lissabon árið 2000. Samtök iðnaðar og verslunar í Evrópu, Euro Chambres, ákváðu strax að fylgja eftir framvindu árangurs þessara markmiða og að kynna svo reglulega þann árangur sem Evrópusambandið næði.

Markmiðin mæla svo fyrir að hagkerfi Evrópusambandsins eigi að vera orðið ríkasta og samkeppnishæfasta í heimi árið 2010, þ.e. standa jafnfætis hagkerfi Bandaríkjanna. Nú er árið 2010 runnið upp. Hvernig hefur Evrópusambandinu gegnið? 

Euro Chambers er félagsskapur 19 milljón fyrirtækja í 45 löndum Evrópu og hafa samtökin starfað á vettvangi viðskipta, iðnaðar og efnahagsmála Evrópu síðan 1958.

Er einhver ástæða til að trúa því að Lissabon 2000 markmið Evrópusambandsins munu nokkurn tíma nást? 

Nei, það eru engar líkur á því að Evrópusambandið muni nokkurntíma ná hagsæld og ríkidæmi Bandaríkjamanna. Það mun líklega aldrei gerast. Hvers vegna ekki? Lestu mig




12. janúar 2010
Hinn þekkti sérfræðingur í málefnum ESB og myntbandalagsins, hagfræðingurinn Charles Wyplosz, segir að árangur Lissbon 2000 markmiða Evrópusambandsins sé fíaskó. Hann ráðleggur ESB að hætta við gerð þeirrar nýju og einskisnýtu 10 ára áætlunar sem nú er að veltast höfðum embættismanna Evrópusambandsins í Brussel: VOX

Það eina sem hefur lagast í tölunum miðað við BNA, er atvinnuástand í ESB. En það er mikið vegna þess að kreppan hófst fyrr í Bandaríkjunum og atvinnuleysi og atvinnuþáttaka í ESB lagaðist í stuttan tíma, þ.e. árið 2007 og fyrri hluta ársins 2008, á meðan það versnaði í BNA. Núna er atvinnuástand í ESB hins vegar orðið það versta síðan 1999. Í 2009-skýrslunni biður Eurochambers lesendur að taka tillit til þessa við lestur 2009-skýrslunnar.