Sjálfskaparvíti
Fjármálabóla ECB-seðlabanka evrusvæðis og ESB-yfirvalda
Financial Times þann 4. september 2008
"The Bank must act to end the euro's wilde rise" - Paul De Grauwe
Mynd 6 af 8
Loksins tókst Þýskalandi að koma sér út fyrir reglusett Bundesbanka seðlabanka Þýskalands — sem var gjöf Bandamanna til Þýskalands í rústum eftir heimsstyrjöld þess, og sem átti að sjá til þess að hið peningapólitíska vald- og stefna landsins myndi aldrei aftur falla í hendur brjálæðinga. Í kjölfar evruupptöku tókst hins vegar loksins að brjóta niður þennan varnargarð með því að keyra stýrivexti í Þýskalandi niður í það lægsta frá lokum hinnar síðari heimsstyrjaldar Þýskalands í Evrópu. Sjá Stýrivextir seðlabanka Þýskalands frá upphafi til enda.
Liggur því, samkvæmt vandlega hugsaðri áætlun, myntsvæði evrunnar nú nánast í rúst, eftir að neikvæðir raunstýrivextir ECB-seðlabankans undir stjórn Þjóðverja, Frakka og Brusselveldisins sprengdu stóran hluta myntsvæðisins í loft um til að skapa eftirspurn eftir vörum framleiddum í Þýskalandi. Þetta er sennilega stærsta fjármálabóla veraldarsögunnar. Og hún var skipulögð niður í minnstu smáatriði.
Öll komandi viðbrögð hinna peningapólitísku yfirvalda evrusvæðis, munu öll miðast að því að endurtaka enn risavaxnari fjármálabólu á myndsvæðinu en þeirri sem myndaðist síðast. Reynt verður að sprengja það í óafturkræfar tætlur og bjóða svo lausn sem kölluð verður "óumflýjanleg".
Parið evra og dalur
Tengt efni
|
Verðlag gjaldmiðlar gengi
Subpages (1):
Parið dalur og evra