Skjaldarmerki íslenska lýðveldisins

Share

Efnahagur ESB og Eurochambers

The Association of European Commerce and Industry. Viðskiptaráð Íslands er aðili að þessum samtökum.


 Samkæmt rannsóknum Eurochambers er efnahagur Evrópusambandsins alltaf að dragast meira og meira aftur úr efnahag Bandaríkjanna
 
 Núna er ESB 22 árum á eftir BNA í þjóðartekjum á hvern mann

 og heilum 30 árum á eftir BNA í rannsóknum og þróun

 Það sem enn verra er þá fer þetta bil breikkandi en ekki minnkandi

780days since
dagar síðan íbúar Evrópusambandsins áttu að vera orðnir ríkastir í heiminum samkvæmt Lissabon 2000 markmiðum Evrópusambandsins

Um vefsetrið


Fullt nafn mitt er Gunnar Albert Rögnvaldsson. Ég fæddist árið 1956 á Siglufirði og ólst upp í þeim einstaka bæ fram að 12 ára aldri. Foreldar mínir, Rögnvaldur Rögnvaldsson og Guðrún Albertsdóttir, ég og þrjár systur mínar, Anna, Þórdís og Þorbjörg, fluttum suður til Kópavogs árið 1968, en þá var komið atvinnuleysi því síldin á Siglufirði hvarf og þjóðin missti stóran hluta þjóðartekna sinna. 

Ég byrjaði snemma "að fara í sveit" og þá í torfbæ í Miðfirði í Vestur Húnavatnssýslu og seinna á nýtískulegu stórbýli í Fljótum í Skagafirði. Þannig kynntist ég bæði "gamla" og "nýja" tímanum. Ég vann í byggingarvinnu frá 14 ára aldri á sumrin og lærði múrvek í Kópavogi á táningaárum mínum. Seinna, eftir frekari undirbúningsnám, flutti ég ásamt konu minni, Sigrúnu Guttormsóttir Þormar, og dóttir okkar, til hagfræðináms við háskólann í Árósum. Eg lauk ekki námi heldur fór út í atvinnurekstur í Danmörku og stundaði hann þar fram til ársins 2010, eða í samfellt 22 ár. Fyrstu 12 árin innan smásölugeirans og frá og með árinu 2001 hef ég starfrækt eigið ráðgjafafyrirtæki sem heitir www.islandia.dk 

Við Sigrún eigum tvö uppkomin börn: Valdísi sem er nýútskrifaður þjóðhagfræðingur frá Århus Universitet og Sorbonne í París, - og Gunnar Freyr, sem er við nám í endurskoðun við Copenhagen Business School, eins og sá skóli heitir núna. Sigrún kona mín er einnig hagfræðingur og rekur eigið fyrirtæki - svo hægt er ímynda sér hvað rætt er um við kvöldmatarborðið - og ég tek fram að það eru ekki alltaf allir sammála um allt

Árið 2010 var viðburðaríkt fyrir okkur Sigrúnu. Börnin orðin fullorðin og uppeldishlutverki er að mestu lokið. En það mun þó vonandi aldrei hætta alveg. Annað barnanna flutti úr landi og hitt var einnig á förum. Við erum að verða óþörf, og það er einungis gott merki árangurs. Því hugsuðum við okkur til hreyfings aftur, ég og Sígrún, og já, stefnan var tekin til Íslands með vorskipum 2010, með allt okkar hafurtask og fyrirtæki í lestinni. Þetta er spennandi eftir 25 ára fjarveru. Við vitum að framtíðarhorfur Íslands eru bjartar og öfundsverðar, því héldum við heim á leið aftur því miklu hefur verið áorkað sem laðar svona alþjóðafólk að eins og við erum nú orðin.  

Norðurlandið á Íslandi á alltaf hjarta mitt að fullu

Bestu kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson 

Samband

Best er að ná sambandi við mig á þessu póstfangi: tilveraniesb hjá mac.com 


Sólarlag við tá Tröllaskaga við Siglufjörð


Þetta vefsetur er tileinkað sjálfstæði og fullveldi Íslands

Þetta vefsetur mitt er tileinkað sjálfstæði Íslands. Það er auðvelt að muna slóðina á þessa síðu því nafnið byggist á reynslu og tilveru minni í ESB síðastliðin 25 ár. Best er að muna nafnið á þessu vefsetri með því að tengja saman orðin tilveran í esb á netinu: www.tilveraniesb.net 

Það er álit mitt að það væru mistök árþúsundsins ef Ísland gengi í Evrópusambandið. Heimurinn er miklu stærri en svo að það sé ráðlegt að binda Ísland of þétt við hið hnignandi samfélag Evrópusambandsins, því dragsúgurinn verður þar mikill í framtíðinni

Ég mun uppfæra þessa síðu að staðaldri með þó nokkru af nýmeti og áherslum sem tengjast sjálfstæði Ísland og baráttu fyrir að svo megi verða áfram. Þetta vefsetur er persónulegt málgagn mitt og er ekki hlutlaus veðurathugunarstöð 

Einungis frjálst og fullvalda Ísland mun geta búið til þá velmegun og farsæld sem er svo bráðnauðsynleg til að áframhald getir orðið fyrir íslensku þjóðina næstu 1000 árin

Einungis fullt sjálfstæði mun ala af sér þá nauðsynlegu sjálfsbjargarviðleitni og sjálfsábyrgð sem er forsenda frelsis, velmegunar og fullveldis. Vöðvar frelsisins verða að vera virkir, þeir þola ekki spennitreyjur, því þá visna þeir. Frelsið þarf því að iðka af fullum krafti - það er vöðvabúnt heilans og okkar dýrmætasta auðlind

Því langar mig að legga mitt af mörkum til að Ísland megi vera fullvalda og sjálfstætt ríki áfram. Ég óttast að verið sé að markaðsfæra ESB á Íslandi á svipaðan hátt og reynt var að markaðsfæra hin nú hrundu Sovétríki á Íslandi fyrr á tímum, eða sem hamingjunnar paradís. Allir vita núna hvernig var á bak við tjöldin þar 


Nokkrar greinar

Frá Þjóðmálum  
Frá AMX.IS 
Nýja Argentína er í ESB og heitir að minnsta kosti Lettland


Nokkrir pistlar
Nokkrir valdir pistlar frá moggabloggi mínu, tengdar málefnum ESB og Íslands