Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist vonast til, að hægt verði að finna lausn á hvalveiðum Íslendinga en þær veiðar grafi undan því markmiði, að viðhalda og vernda hvalastofna. Harmar framkvæmdastjórnin að Ísland hafi gefið út kvóta vegna veiða á langreyði og hrefnu í ár. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Stavros Dimas, sem fer með umhverfismál í framkvæmdastjórn ESB, við fyrirspurn þingmannsins Roberts Kilroy á Evrópuþinginu, og einnig í bréfi, sem Dimas hefur sent Alþjóðadýraverndarsjóðnum, IFAW. |
Veitur > Erlent efni >