8 evrópskir stórbankar mynda ESB þrýstihóp
Post date: Jan 22, 2009 7:15:40 AM
Að minnsta kosti 8 evrópskir stórbankar mynda þrýstihóp til að mjólka þá hjálp út úr ESB til bankarekstur síns utan ESB og EEA landa sem Ísland fékk ekki til banka sinna innan ESB og EEA
Á meðan Evrópusambandið gerði sitt besta til að knésetja íslenska banka í Evrópusambandinu þá rotta 8 evrópskir stórbankar sig saman í tilraunum til að beita áhrifum sínum til þess að fá Evrópusambandið og seðlabanka Evrópusambandsins til að hjálpa þeim út úr miklum ógöngum í löndum Austur Evrópu. Þetta er gert með tilvísun til hins pólitíska ástands í þessum löndum. Ekki er vitað hvaða lönd er átt við en Financial Times segir að ljóst sé að það er ekki átt við flest þau lönd í Austur Evrópu sem eru í Evrópusambandinu nú þegar.
Bankarnir sem mynda þrýstihópinn eru að minnsta kosti þessir
Unicredit og Intesa Sanpaolo frá Ítalíu
Erste Bank frá Austurríki
Raiffeisen frá Austurríki
Société Générale frá Frakklandi
Belgíski KBC bankinn
Þýski Bayern Landesbank
Sænski Swedbank
og EFG Eurobank frá Grikklandi
Mynd: eldra skipurit úr eldri gerð áætlunar-hagkerfa
Frétt Financial Times