Post date: May 15, 2009 9:31:12 AM
Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, segir að stefna ríkisstjórnarinnar í Evrópusambandsmálum sé stjórnskipulegur óskapnaður, jafnt að formi og innihaldi.
Hann fer hörðum orðum um stefnuna í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Hjörleifur Guttormsson, sem er félagi í Vinstri grænum, segir að fjölmiðlar hafi að vonum fyrst og fremst staldrað við kafla í langri stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað er um Evrópumálin og segir síðan:
"Í þeim texta er á ferðinni ótrúlegur stjórnskipulegur óskapnaður jafnt að formi og innihaldi, sem helgast eflaust af því að stjórnarflokkana greinir á um grundvallaratriði málsins. Byrjað er á að boða að ákvörðun um aðild Íslands að ESB verði í höndum íslensku þjóðarinnar sem muni í þjóðaratkvæðagreiðslu greiða atkvæði um samning að loknum aðildarviðræðum. „Utanríkisráðherra“ muni á vorþingi leggja fram tillögu um aðildarumsókn. Með þessum orðum er gert ráð fyrir að aðildarsamningur verði að veruleika . . .
lesa áfram hér: Stefnaríkisstjórnarinnar í ESB er stjórnskipulegur óskapnaður
Hjörleifur Guttormsson
Frá heimasíðu Hjörleifs Guttormssonar: Af vettvangi dagsins