Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) vantar og vantar ekki fleiri peninga

Post date: Feb 03, 2009 6:53:38 PM

Skilaboð frá IMF

Vefsetrið Baseline Scenario, sem m.a. er rekið af Simon Johnson sem er fyrrverandi aðalhagfræðingur hjá IMF og núna prófessor við MIT og Peterson Institute, segir að tilkynning IMF á Davos efnahagsráðstefnunni um daginn sé mjög merkileg. En hann segir einnig að tilkynningin sé einungis merkileg fyrir þá sem geta lesið hana og sem einnig kunna túlka skilaboðin frá IMF rétt.

IMF segir (undarlega) í tilkynningunni að sjóðurinn hafi næga peninga til umráða. Sjóðurinn ráði nú þegar yfir 250 miljörðum dollara og að hann sé einungis búinn að ráðstafa undir 50 miljörðum af þessu fé. En á sama tíma segir sjóðurinn að hann vanti fleiri peninga. 250 miljarða dollara í biðbót! En hvernig stendur á þessu?

Hvað er kanski að gerast?

Jú, Simon segir að þetta sé sú aðferð sem IMF notar við að segja við þá sem kunna tungumál IMF að heimurinn sé í mjög alvarlegum vandræðum. En vandræðin eru samt ekki venjuleg eða hefðbundin. Þessvegna segir IMF að það vanti 250 miljarða dollara í viðbót og hann segir einnig í nýjustu spá sinni að hagkerfi Bandaríkjanna verði okay, og að vandamálin í Kína séu ekki "out of control" og að nýmarkaðslönd muni eiga í miklum erfiðleikum, eins og allir gerðu einnig ráð fyrir.

En hvað er þá að? Hvað ætlar IMF að gera við 350-450 miljarða dollara og hvar ætlar sjóðurinn að nota þessa miljarða? Jú segir Simon, það þarf að nota þá í löndum sem eru eins rík og Ísland, en bara miklu miklu miklu stærri - og, að þessi lönd séu í Vestur Evrópu. Simon segir að það hafi hjálpað skilningi IMF á vandamálum evrusvæðis að lesa grein hans, writing on the eurozone wall.

Sem sagt. Hin virkilega stóru verkefni IMF munu kanski liggja innan í evrusvæðinu. Hver veit. Simon Johnson segir að 500 miljarðar séu ekki nóg. Næsta haust verður þessi tala komin upp í 1 trilljón dollara.

Mynd: Skuldastaða banka í Evrópu

Um Baseline Scenario

Aðstandendur Baseline Scenario eru þessir:

Peter Boone is chair of Effective Intervention, a UK-based charity, and an Associate at the Centre for Economic Performance, London School of Economics.

Simon Johnson, former chief economist of the International Monetary Fund, is a professor at the MIT Sloan School of Management and a senior fellow at the Peterson Institute for International Economics. He is a co-founder of The Baseline Scenario.

James Kwak is a former McKinsey consultant, a co-founder of Guidewire Software, and currently a student at the Yale Law School. He is a co-founder of The Baseline Scenario.

Glærur Simon Johnson frá 4, janúar 2009 má lesa hér:

The Likely Future of the Eurozone

Viðstaddur kynninguna var meðal annarra:

    • Aside: my presentation was part of a panel discussion on the euro at the American Economic Association conferenc in San Francisco. ECB Vice President Lucas Papademos was also on the panel, and told the press afterwards: (I’m taking the quotes as reported by Citigroup this morning, to illustrate what the market is focussing on)…

Tengt efni: