Neista af jarðsambandi sló loks niður í ECB
Post date: Feb 13, 2009 12:58:3 AM
Neista af jarðsambandi sló loks niður í aðalstöðvar seðlabanka Evrópusambandsins - en bara of seint
Væntingar ECB gengisfelldar með 667%
Þangað til í gærdag hélt seðlabanki Evrópusambandsins (ECB) því fram að kreppan sem við þekkjum öll svo of vel - kreppan sem hófst með bankakreppu og sem núna er orðin að raunverulegri efnahagskreppu - myndi verða mild og blíð við okkur öll. Þessvegna hefur ECB ekki fengist til að lækka vexti nógu mikið á evrusvæðinu. Þeir eru ennþá óþarflega háir.
En í gær kom svo smá neistaflug frá ECB í formi stærstu afskrifta í sögu bankans á væntingum til evrusvæðis fyrir næstu 12-24 mánuðina. Bankinn skar svoleiðis hagvaxtarvæntingar sínar niður tæplega sjöfalt. Fallið í væntunum ESB er nákvæmlega 667% því í síðustu hagspá bankans gerði hann ráð fyrir 0,3% hagvexti árið 2009 og 1,4% hagvexti árið 2010. En núna spáir ESB því að samdráttur verði mínus 1,7 (-1,7%) á þessu ári og 0,6% hagvexti árið 2010. Þetta er stærsta kúvending í sögu bankans.
Mínar væntingar
Mín eigin skoðun er sú að þetta sé einungis fyrsti vottur af jarðsambandi við raunveruleikann hjá ECB. Þetta á eftir að versna til muna og það er sannfæring mín að t.d. Þýskaland eigi eftir að upplifa 4-6% samdrátt á þessu ári. Nokkur ríki í ESB munu upplifa meira en 10% fall í þjóðarframleiðslu. Og jafnvel mun meira. Flestir gera sér litla grein fyrir hversu illa Þýskalandi mun reiða af í hinum mikla samdrætti í heimsverslun & heimsviðskiptum.
Ein veigamikil ástæða
Hvað gera ríkisstjórnir þegar þær hjálpa bönkum landa sinna í neyðarástandi - eins og þær eru flestar að gera núna? Þegar ríkisstjórnirnar koma inn og bjarga bankakerfum landa sinna með peningum skattgreiðenda? Jú - það fyrsta sem þær krefjast er: "þið verðið að loka á þátt ykkar erlendis. Hreinsa upp þetta erlenda dót ykkar. Við dælum ekki skattapeningum almennings í að hjálpa erlendum ríkjum".
Þetta þýðir að nýmarkaðslöndin munu verða illa úti og loka á framkvæmdir og fjárfestingar og þar með lokast verulega á útflutning Þýskalands og einnig á alla hagvaxtarmöguleika Þýskalands því það er orðið næstum útilokað að örva innanlands-eftirspurn í Þýskalandi. Sá tími er liðinn því þjóðin er orðin svo öldruð og lokar seðlaveskinu strax við minnstu hættumerki í hagkerfinu. Sama saga er á Spáni, Ítalíu og í allri Austur Evrópu.
Iðnaðarframleiðsla ESB fellur fram af bjargbrún.
Fallið í iðnaðarframleiðslu á milli mánaða og á milli ára í ESB - nokkrar tölur:
Frá nóvember 2008 til desember 2008 (einn mánuður)
Þýskaland: -4,9%
Spánn: -3,5%
Frakkland: -1,8%
Írland: -10,2%
Slóvakía: -12,7%
Frá desember 2007 til desember 2008 (12 mánuðir)
ESB 27 lönd: -11,5%
Evrusvæði 15 lönd: -12%
Þýskaland: -12,4%
Spánn: -19,6%
Ítalía: -14,3%
Eistland: -20,7%
Svíþjóð: -18,4%
Frá +0,3% til -1,7% á 30 dögum.
-667%
Hvað næst?
Cliffhanger
Þróun iðnanarframleiðslu í ESB fram að síðustu áramótum
Fréttatilkynning frá Eurostat viðhengt sem PDF skjal neðst í þessari færslu
Tafla Eurostat hér
Til umhugsunar
Í Kreppunni Miklu féll iðnaðarframleiðsla um 25% frá 1930-1932 - þ.e. á þrem árum.
Í sumum Asíulöndum hefur iðnaðarframleiðsla nú þegar fallið meira en þetta - á einu ári!